Sumarfrí sumarfrí

jæja nú fer loksins að koma að því að ég fái mitt langþráða sumarfrí, bara þrjár vaktir eftir og svo sumarfrí.  Ég er búin að vinna upp á dag núna í tvær vikur og stundum tvöfaldar vaktir, alveg búin að fá nóg af vinnunni í bili og finnst ég sko alveg eiga skilið gott sumarfrí.  Ég er sko að fara í algerlega blanko sumarfrí þar sem ekkert er planað, heldur ætla ég að reyna að taka spontant ákvarðanir og hafa þetta skemmtilegt sumarfrí,  ég þarf eiginlega að fá einhvern sjálfboðaliða til þess að klípa í mig ef ég fer að kvarta yfir leiðindum og minna mig á að ég ætlaði að hafa þetta skemmtilegt sumarfrí.  Það er nú svo sem von og vísa að það verði rigning og rok allt fríið mitt,  það hefur gerst a.m.k  tvisvar sinnum áður.. en þá verð ég bara að fara eitthvað þar sem er sól og hiti svo ég geti hætt að kvarta eða þurfi ekki að byrja að kvarta.  En núna ætla ég bara að setja upp bjartsýnisgleraugun og trúa því að það verði bæði gaman og gott veður í fríinu mínuCool.

En það vantar svo sem ekki verkefnin,  ég er náttúrulega ný flutt og á eftir að koma mér almennilega fyrir og svoleiðis, svo ætla ég að taka baðherbergið í gegn og dúlla mér í garðinum og það eru bara allskonar verkefni framundan sem mig hlakkar svo til að leysa.... og svo er auðvitað helsta verkefnið sem er að gera ekki neitt eða sem allra minnst og njóta þess í botn..................og svo segi ég bara á miðju sumri    GLEÐILEGT SUMAR  og reynum að njóta þess að vera til.


frábært framtak

Mér finnst þetta frábært framtak hjá hjúkrunarfræðingum, og gaman að sjá samstöðuna sem myndast hjá heilbrigðisstéttum í þessu máli, enda er þetta fólkið sem horfir á afleiðingarnar af öllum þessum slysum.

Ég held ég ætti að hlusta oftar á 7 ára dóttur mína sem er stöðugt að horfa á hraðamælinn þegar við erum að  keyra og skammar mig ef ég fer yfir löglegan hraða, og passar vel upp á það að  ég og aðrir sem setjast upp í bílinn séu með beltin spennt.  Það er gott að hafa einhvern til að minna sig á, en ég er að hugsa um að reyna að standa mig betur svo að lítla ábyrgðarfulla dóttir mín þurfi ekki að fylgjast með því að móðir hennar keyrir á löglegum hraða.Blush


mbl.is Góð þáttaka í fjöldagöngum gegn slysum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flutningar... brjálað að gera

jæja þá er ég loksins flutt og allt svona við það að komast á sinn stað,  þetta er ekkert smá mikil vinna og vesen sem fylgir flutningum... vá maður þetta ætlar engann endi að taka.  En það góða við flutningar er að maður hreinsar aðeins til,  það eru ekki fáar ferðirnar sem ég er búin að fara í sorpu með rusl í tonnavís, föt í massavís í rauða kross gáminn og svo eitt og annað í góða hirðirinn,  það er ekkert smá sem maður getur dundað sér við að safna í kringum sig,  ég held meira að segja að ef ég færi aftur yfir allt dótið og draslið sem eftir er að ég gæti fyllt nokkra svarta ruslapoka í viðbót, kanski ég geri það bara !!!!  Svo bíður mín annað spennandi verkefni, það er að koma baðherberginu í stand, spurning hvenær maður fær iðnaðarmennina til að koma..... það getur örugglega tekið margar vikur... en sjáum til, maður hefur nú einhver sambönd. 

Nú er Margrét hjá pabba sínum í ca tvær vikur og það verður unnið eins og geðsjúklingur á meðan, ég held ég eigi engan heilan frídag á meðan...úff.. en maður verður víst að eiga fyrir breytingunum á baðherberginu ekki satt !!  Svo fer ég líka í sumarfrí í næstum því fimm vikur og þá verður sko slappað af.  Allt hefur sinn tíma... að vinna hefur sinn tíma og að sofa hefur sinn tíma og það verður það sem ég eyði næstum tveimur vikum í  og svo hefur sumarfríið sinn  tíma..... ég hlakka til Cool


ojbara

verð bara að minnast á veðrið.............ég vona bara að síðustu dagar séu ekki sýnishorn veðursins  sem koma skal þetta sumarið,  ég ætla að ákveða að reyna að vera jákvæð og trúa því að veðurguðirnir séu að reyna að klára vonda veðrið fyrir sumarið , rigninguna og rokið og ætli svo að eiga nóg af sól og sumaryl það sem eftir  lifir sumars..... bara spurning hvenær þetta endar ???? og hvað verður mikið eftir af sumri þegar það gerist ????

bbaaahhhh

Það er gott að vita að fleiri geta verið mislyndir en ég,  en það sem betra er að vita, er það hvenær maður á að þegja og leyfa fólki að spúa út sínu mislyndi og þykjast heyra, en láta það sem vind um eyru þjóta. Þetta er æfing sem er nokkuð erfið, en æfingin skapar meistarann ekki satt.  Best að draga djúpt andann og halda áfram.....  Svo vil ég bara þakka skapara mínu fyrir mitt       jafnaðargeðWhistling

Forvarnir eru í okkar höndum

Ég var að lesa leiðara morgunblaðsins og ég er bara mjög ánægð með þessa umræðu.  Þetta er bara nákvæmlega það sem við vitum öll en margir hafa verið í algerri afneitun gangvart !!  Í leiðaranum er fjallað um rannsókn sem byggist á forvörnum gegn vímuefnum, var rannsóknin gerðí nokkrum borgum í evrópu og kemur Reykjavík vel þar út, neysla vímuefna í 10.bekk hefur dregist saman um helming hér, á þeim tíma sem rannsóknin var framkvæmd,  mjög jákvætt !!    Þar er fjallað um hvað það er sem unglingar þarfnast og það er alveg ljóst að þau þarfnist meiri tíma og samveru með foreldrum sínum.  Samfélagið okkar hefur snúist svolítið mikið um að vinna mikið og eiga nóg af öllu og nógu flott. Margir átta sig ekki á því að börnin okkar þarfnist frekar tíma með okkur heldur en allra þeirra hluta sem keyptir eru til þess að friða samviskuna..... það gleður þau mikið meir þegar manni dettur í hug að gera eitthvað skemmtilegt með þeim,  þá fara þau ánægð og glöð að sofa.  Ég hef tekið eftir því að þegar ég hef látið mikið eftir dóttur minn þá vill hún bara meira, en þegar við gerum eitthvað skemmtilegt saman er hún bara glöð og sjálfri sér nóg.

Af hverju leggjum við ekki af kröfunum um að eiga allt það flottasta og fínast, minnkum aðeins þann tíma sem fer í vinnunna og eyðum meiri tíma með börnunum okkar,  því það eru  jú þau sem eru framtíðin og því lengur sem við leikum við börnin okkar, gefum þeim tíma og setjum þeim skýr mörk því minni líkur eru á því að þau leiðist út í neyslu vímuefna.  Munum að gleði barnanna okkar er okkar gleði ekki satt,  lífshamingjan felst  jú í því að fá að horfa á börnin sín vaxa og dafna á heilbrigðan hátt í kærleiksríku umhverfi.


Það góða við næturvaktir !!

Það er alveg ótrúlega magnað hvað veðrið er oft gott svona á nóttunni, mjög oft logn og svo er birtan oft mjög falleg í ljósaskiptunum. Kyrrðin með eindæmum og maður getur notið þess að horfa út um gluggann án þess að vera truflaður.  Allir sofandi á sínu græna og erill dagsins langt undan.  Maður sleppur við allt áreiti morgunvaktarinnar og getur notið þess að vinna sín verk í friði fyrir órólegum yfirmönnum og stressuðu samstarfsfólki.  Notið þess að taka góðan tíma í að lesa blöðin og fá sér gott að borða, án þess að vera truflaður.  Maður nær ágætri slökun og hefur temmilega mikið að verkefnum þess á milli....svona á vinna að vera.   En það besta við næturvaktir er að sjá þegar morgunvaktin mætir á svæðið til þess að taka við af manni og kikkið sem maður fær við það að fara heim að sofa þegar allir aðrir eru að vinna,  leggjast dauðþreytt á koddann og finnast maður virkilega eiga hvíldina skilið eftir næturvökuna.  Já svona er þetta.. það er ótrúlegt hvað það er gaman að sjá jákvæðu hliðarnar á því sem mér finnst ekkert rosalega gaman að gera eins og að vera á næturvakt, þá verður það einhvernveginn auðveldara og skemmtilegra!!!!!


Ráðherrar og súperkonur

Ég verð að segja það að mér líst bara vel á nýju ríkisstjórnina og er bara nokkuð ánægð með ráðherraskipan,  kom mér nokkuð á óvart að Guðlaugur Þór hafi verið settur sem heilbrigðisráðherra en eftir smá umhugsun held ég að hann gæti átt eftir að standa sig vel og tel hann bara nokkuð hugaðan að setjast í þennan stól þar sem hans bíða mörg stór verkefni og vonandi á maður eftir að sjá hann gera góða hluti...... stattu þig Guðlaugur, ég hlakka til að fylgjast með !!

Ég er orðin frekar leið á þessu endalausa jafnréttis bulli um að fjöldi kvenna og karla í ríkisstjórn þurfi að vera jafn,  er ekki bara málið að velja hæfasta fólki í hverja stöðu.  Núna verða þó fjórar konur í ríkisstjórn sem ég tel bara nokkuð gott ef maður lítur til hlutfalls kvenna á alþingi.  Auðvitað vil ég jafna launamun kynjanna,  en við konurnar erum bara öðruvísi en karlarnir og forgangsröðum öðruvísi en karlar, viljum flestar eyða tímanum okkar á annan hátt er karlar, ekki að það sé neitt betra eða verra.. við erum bara þannig gerðar.  Við viljum flestar hugsa um börnin okkar og heimili, hafa það notalegt og eiga tíma fyrir okkur,  og sumar okkar vilja láta karlinn hugsa um sig og skaffa pening enda er það það besta sem þeir gera (ef þetta eru almennilegir menn) af hverju þá ekki að leyfa þeim það, njóta þess að vera meira heima og gera eitthvað skemmtilegt. " dúlla okkur".  Við verðum hvort sem er að passa stundaskrána fyrir allt heimilið og sjá um innkaupin og þrifin og jafnvel reikningana plús það að vera í einhverju framapoti.....ok fyrir þær sem vilja það  en ég er sko búin að átta mig á því að ég er engin súperkona...... en neyðist samt til að vera smá míni superkona því ég þarf sko að sjá um þetta allt og vinna mína 100% vinnu , af því að ég á engann kall........     he he en ég skal sko njóta þess þegar hann birtist og flækist í netinu, greyið hannGrin .


Afmæli og ofát

Það er nú meira hvað allir sem maður þekkir þurfa að eiga afmæli á svipuðum tíma, ég geri varla annað en að mæta í afmælisveislur þessa dagana og éta yfir mig.  Ég fór í tvær í gær (sunnudag) og hefði geta farið í þrjár en ákvað að sleppa einni, svona bara eiginlega vegna tímaskorts, maður þyrfti eiginlega að getað margfaldað sig.  Sko önnur afmælisveislan var eins og fermingarveisla...sjötíu manns boðið og kræsingarnar úff púff.... ekkert smá flott en ég þessi líka litla húsmóðir myndi sko ekki nenna  þessu!!  En mikið gott og mikið étið.  Svo næsta veisla bara fín svona nokkuð venjuleg og já svona í þeim takti sem að ég mundi nenna að hafa fyrir...... einfalt,  ekki of mikið og barasta mjög gott.........  og aftur mikið étið.... ég er nefnilega þeim eiginleikum gædd að ég kann mér ekki hóf og finnst alveg svakalega gott að borða.         En það kemur alltaf niður á manni,  eftir átveisluna leið mér eiginlega ekki nógu vel Undecided.  Ég sem sef alltaf eins og steinn, átti eiginlega bara erfiða og svefnlausa nótt sökum flökurleika eftir allar kræsingarnar.  Auðvitað kom ég ekki neinni hollustu niður þann daginn þvi mallinn var smekkfullur af sykri og rjóma og öðru gúmmúlaði,  en svona er þetta þegar maður er ábyrgðarlaus gagnvart sjálfum sér og gleymir sér í gleðinni.  En þá er bara að snúa við blaðinu, taka ábyrgð á heilsunni og fá sér hafragraut með hörfræjum í morgunmat og koma meltingunni í gott lag aftur...svo er það bara gras í nokkra daga til að bæta fyrir át fylleríið...... Talandi um að maður eigi ekki að flækja lífið sitt, þá finnst mér bara eiginlega mjög flókið og erftitt í framkvæmd að gera það einfalt........ hvissss   bammm búmmm......  hvar er álfkonan með töfrasprotannWizard sem reddar öllu ?????????


Hefur einhver hraðað tímanum ?!

núna er ég glaðvakandi í vinnunni um miðja nótt, lítið að gera núna og þá fer maður að hugsa..... ég hef tekið eftir því hvað tíminn virðist alltaf vera fljótari og fljótari að líða og þá sérstaklega þegar maður þarf að gera eitthvað fyrir ákveðinn tíma.  Ég er að fara að flytja eftir akkúrat fjórar vikur og bara í gær voru sko sjö vikur þangað til, og ég sem ætlaði að vera rosalega dugleg að losa mig við drasl og flytja sem minnst af því í nýju íbúðina.... en ég virðist bara safna drasli.  þetta er stórskrítið og svo bara gerist ekki neitt,  ég er bara komin með lömunarveikina og bíð dag eftir dag, eftir því að ég verði dugleg og byrji að losa mig við draslið..en ætli það líði ekki aðrar þrjár vikur og ég ekki farin að gera neitt og bara vika þangað til íbúðin er í mínum höndum.  Maður er náttúrulega ekki alveg í lagi og svo hamast ég bara við að taka aukavaktir og finna mér allt annað að gera enda ekki hægt að vera heima fyrir drasli og dóti......og verkefnum sem bíða.  En svo má auðvitað líka reyna að kenna öðrum um.. það eru svona ca. tíu afmæli sem mér er boðið í og vortónleikar hjá kórnum og í tónlistarskólanum hjá barninu, vorhátíð í vinnunni og útskriftarboð í gamla menntaskólanum mínum... já þetta er auðvitað heilmikið og kanski ekki skrítið að maður fái smá lömunarveiki svona þegar maður er heima og reynir að sinna barninu og öllu hinu, ég verð víst að játa mig sigraða..ég er ekki superkonan

En það verður nú gaman að fara í 15 ára útskriftarboð í gamla skólanum á morgun og hitta alla kennara og samnemendur 15 árum eldri, ótrúlegt 15 árum eldri og mér finnst ég bara ennþá vera tvítug eða kanski 25..... talandi um að tíminn líði hratt,  ég hef oft velt því fyrir mér hvort tíminn sé ekki farin í alvöru að líða hraðar og tími mannsins á jörðinni sé alltaf að styttast þrátt fyrir að líftími manna aukist.......spurning hvort almættið hafi ekki bara hraðað tímanum án þess að við höfum tekið eftir því!!  held ég fari að snúa mér aftur að vinnunni FootinMouth


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband