Vel heppnað Reunion

jæja þá er reunionið afstaðið....búið að vera heilmikil undirbúningsvinna í margar vikur, svaka gaman!! og svo rann dagurinn upp sl. laugardag.... við mættum upp í gamla skólann okkar Ölduselsskóla árgangur 1972 og ótrúlegt en satt þá eru liðin 20 ár síðna við kláruðum grunnskóla.  Eftirvæntingin skein úr hverju andliti þegar við mættum og það var mikið um knús og kossa og þetta var frekar skondið af því það voru allir eiginlega eins, bara tuttugu árum eldir, heldur hærri í lofti og kanski eilítið breiðari en síðast... en að öðru leiti bara eins, alveg frábært.

við byrjuðum á því að skunda um skólann og rifja upp gamla tíma, ótrúlegt  hvað stofurnar hafa minnkað  hmmm.... og allar minningarna sem streymdu bara við það að ganga um gangana með gömlu félögunum, maður varð næstum 15 ára aftur.  Eftir tölu skólastjóra og skemmtilegt slideshow fórum við með rútu í Fáksheimilið þar sem biðu eftir okkur kræsingar,  ´80 tónlist og tjútt fram á rauða nótt.  Allt small alveg ótrúlega saman og allir voru svo glaðir og skemmtu sér svo vel .... alveg eins og í gamla daga.... frábært og takk krakkar fyrir skemmtilegt kvöld

 


Bloggfærslur 15. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband