Afmæli og ofát

Það er nú meira hvað allir sem maður þekkir þurfa að eiga afmæli á svipuðum tíma, ég geri varla annað en að mæta í afmælisveislur þessa dagana og éta yfir mig.  Ég fór í tvær í gær (sunnudag) og hefði geta farið í þrjár en ákvað að sleppa einni, svona bara eiginlega vegna tímaskorts, maður þyrfti eiginlega að getað margfaldað sig.  Sko önnur afmælisveislan var eins og fermingarveisla...sjötíu manns boðið og kræsingarnar úff púff.... ekkert smá flott en ég þessi líka litla húsmóðir myndi sko ekki nenna  þessu!!  En mikið gott og mikið étið.  Svo næsta veisla bara fín svona nokkuð venjuleg og já svona í þeim takti sem að ég mundi nenna að hafa fyrir...... einfalt,  ekki of mikið og barasta mjög gott.........  og aftur mikið étið.... ég er nefnilega þeim eiginleikum gædd að ég kann mér ekki hóf og finnst alveg svakalega gott að borða.         En það kemur alltaf niður á manni,  eftir átveisluna leið mér eiginlega ekki nógu vel Undecided.  Ég sem sef alltaf eins og steinn, átti eiginlega bara erfiða og svefnlausa nótt sökum flökurleika eftir allar kræsingarnar.  Auðvitað kom ég ekki neinni hollustu niður þann daginn þvi mallinn var smekkfullur af sykri og rjóma og öðru gúmmúlaði,  en svona er þetta þegar maður er ábyrgðarlaus gagnvart sjálfum sér og gleymir sér í gleðinni.  En þá er bara að snúa við blaðinu, taka ábyrgð á heilsunni og fá sér hafragraut með hörfræjum í morgunmat og koma meltingunni í gott lag aftur...svo er það bara gras í nokkra daga til að bæta fyrir át fylleríið...... Talandi um að maður eigi ekki að flækja lífið sitt, þá finnst mér bara eiginlega mjög flókið og erftitt í framkvæmd að gera það einfalt........ hvissss   bammm búmmm......  hvar er álfkonan með töfrasprotannWizard sem reddar öllu ?????????


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband