30.4.2008 | 09:48
glæsilegt
gott að heyra að geislafræðingar ætli að stand við uppsagnir..... nú er kominn tími til að stjórnendur Landspítalans fái að vita að starfsfólk er búið að fá nóg af langvarandi álagi... og að endalaust er sé hægt að trampa á því á skítugum skónum... heldur yfirstjórnin virkilega að hægt sé að bjóða fólki hvað sem er.... alltaf og endalaust.
Geislafræðingar hætta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2008 | 19:19
Uppsagnir standa....
frábært, ég er ekkert smá stolt af skurð og svæfingahjúkrunarfræðingum að láta ekki plata sig til að fresta vandamálinu. Svona er þetta bara alltaf, það er stöðugt þrengt að réttindum starfsfólks landspítalans og kominn tími til að einhver standi upp og segi hingað og ekki lengra. Svo hljóma allar fréttir þannig að hjúkrunarfræðingar séu vondi kallinn.... stofna lífi sjúklinga í hættu haha. ég held að þessi yfirstjórn ætti að kynna sér betur hvað er að gerast á gólfinu á spítalanum og hlusta á þá sem vinna þar.
Ég vona bara að hjúkrunarfræðingar allir sem einn standi svona þétt saman í komandi kjarasamningum og láti ekki bjóða sér hvað sem er.... nú er komið nóg!!
Uppsagnirnar standa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.4.2008 | 21:16
Vel heppnað Reunion
jæja þá er reunionið afstaðið....búið að vera heilmikil undirbúningsvinna í margar vikur, svaka gaman!! og svo rann dagurinn upp sl. laugardag.... við mættum upp í gamla skólann okkar Ölduselsskóla árgangur 1972 og ótrúlegt en satt þá eru liðin 20 ár síðna við kláruðum grunnskóla. Eftirvæntingin skein úr hverju andliti þegar við mættum og það var mikið um knús og kossa og þetta var frekar skondið af því það voru allir eiginlega eins, bara tuttugu árum eldir, heldur hærri í lofti og kanski eilítið breiðari en síðast... en að öðru leiti bara eins, alveg frábært.
við byrjuðum á því að skunda um skólann og rifja upp gamla tíma, ótrúlegt hvað stofurnar hafa minnkað hmmm.... og allar minningarna sem streymdu bara við það að ganga um gangana með gömlu félögunum, maður varð næstum 15 ára aftur. Eftir tölu skólastjóra og skemmtilegt slideshow fórum við með rútu í Fáksheimilið þar sem biðu eftir okkur kræsingar, ´80 tónlist og tjútt fram á rauða nótt. Allt small alveg ótrúlega saman og allir voru svo glaðir og skemmtu sér svo vel .... alveg eins og í gamla daga.... frábært og takk krakkar fyrir skemmtilegt kvöld
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.3.2008 | 00:07
Gjafmilt fermingarbarn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.3.2008 | 23:59
samstaða
ég er ekkert smá stolt af vörubílstjóraköllunum, frábær samstaða, svona væri gaman að sjá oftar í okkar þjóðfélagi..... samstöðu !!! Við erum allt of heiladauð og látum allt yfir okkur ganga án þess að láta nokkuð í okkur heyra.... en samt kvarta allir í sínu horni hundóánægðir með ástandið.
Frábært strákar ég stend með ykkur og æfi mig með glöðu geði í þolinmæði meðan í sit föst í umferðinni
Bílstjórar mótmæla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.3.2008 | 16:26
Dásamlegir páskar
jæja nú eru þessir wonderful páskafrídagar búnir, það sem er gott við páskana er að það er yfirleitt ekki mikið vesen í kringum þá eins og í kringum jólin, svona undirbúningur og jólaböð og geðveiki. Þarna fær maður bara nokkra góða frídaga og getur bara gert það sem maður vill.. og þess vegna ekki neitt ef manni sýnist svo. Nema kanski þeir sem þurfa að fara í margar fermingarveislur, eða ferma sjálfir , en ég var svo heppin um þessa páska að það var ekkert svoleiðis í gangi svo ég bara slappaði af heilan helling, naut veðurblíðunnar og þess að vera til. Það er líka búið að vera mikið álag í vinnunni undanfarið svo þetta var kærkomið frí.
Svo er líka heilmikið skemmtilegt framundan..... núna erum við nokkrar stöllur að undirbúa 20 ára reunion frá grunnskólalokum , ekkert smá spennandi að hitta alla gömlu skólafélagana og sjá hvernig árin hafa leikið þau.. hehe en vonandi hafa árin farið blíðum höndum um sem flesta.... ótrúlegt hvað tíminn líður hratt... það var eins og gerst hefði í gær !!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.2.2008 | 15:41
Skemmtilegt
Ríkar konur - sætir strákar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.2.2008 | 20:45
Gamla góða rútínan alltaf best
jæja þá erum við mæðgur komnar í rútínu hversdagsins eftir erfiða viku. Já allri síðustu viku eyddum við í að gera litlu dömuna verkjalausa.... já ótrúlegt en satt. Margrét fór í aðgerð á mánudaginn var og allt gekk bara nokkuð vel, allavega var læknirinn ánægður !! Svo fórum við heim á þriðjudeginum og þá tóku við tveir skemmtilegir sólahringar eða þannig, litla daman mín bara grét og kvartaði stanslaust um verki, það var eiginlega sama hvað ég gaf henni af verkjalyfjum(án þess þó að fara yfir strikið) og svo loksins eftir tvo sólahringa heima gafst ég upp.. það er alltaf pínu erfitt sérstaklega þar sem maður er nú hjúkka. En við enduðum með því að fara aftur upp á spítala til þess að fá verkjastillingu og þar fékk daman að eyða öðrum tveimur sólahringjum. En núna er hún komin heim og fór meira að segja í skólann í morgun og er bara orðin fín og nánast verkjalaus..... og þvílíkur léttirog gaman að sjá hana glaða og káta.
Þá er bara að komast í réttu rútinuna aftur......svona vesen verður alltaf til þess að allt fer úr skorðum, allavega hjá mér!!! Ég dáist alveg að foreldrum langveikra barna að halda geðheilsunni því það tekur alveg ótrúlega á að eiga barn sem er veikt og líður ílla. En daman mín er nú alveg ótrúlega dugleg og mikil hetja....ég held þetta hafi verið áttunda aðgerðin og Guð má vita hvað hún á eftir að fara í margar, en núna er hún bara glöð og kát og ekkert að spá í það. Svona eru börnin frábær, þau eru bara í núinu og njóta lífsins þegar þeim líður vel.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.1.2008 | 15:53
Roookrassgat
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.1.2008 | 18:09
jæja á maður að halda þessu áfram eða hvað??
jæja nú fer að vera spurning hvort maður eigi að halda þessu bloggi út eða bara sleppa þessu !!! ég held nú samt að ég geri aðra tilraun til að reyna að hafa eitthvað að segja eða þarf maður að hafa eitthvað að segja........mér sýnist ekki svona þegar ég les öll hin bloggin.
ég fékk senda vísu í dag.......höfundur óþekktur, en ég læt hana flakka svona í tilefni atburða síðustu daga
BorgarblúsDagur er liðinn og dæmalaus sorg,
depurð og leiði í hnípinni borg.
Ólafur Frjálslyndur (óháður þó)
öllu brátt ræður í fjúki og snjó.
Björn Ingi snarar sér Boss-jakkann í,
blessaður engillinn kominn í frí.
Svandís er forviða, heldur um haus,
hennar er stóllinn þó alls ekki laus.
Vilhjámur Þ., sá er stóð upp úr stól
og stakk af til Kanarí rétt fyrir jól,
kemur til baka með börnin sín smá
og borgmester verður að ári hér frá.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)